Ragnar Jón Ragnarsson, Humi, gengur til liðs við Ekil

Ekill ökuskóli býður Ragnar Jón Ragnarsson, Huma, hjartanlega velkominn í hóp ökukennara. Humi mun starfa með Ekli á höfuðborgarsvæðinu og kenna bæði almenn ökuréttindi og aukin ökuréttindi.

Inda Björk Gunnarsdóttir gengur til liðs við Ekil ökuskóla á Akureyri

Ekill ökuskóli býður Indu Björk Gunnarsdóttur hjartanlega velkomna í hóp ökukennara á Akureyri. Inda Björk er nýútskrifaður ökukennari og kemur með dýrmæta reynslu úr skólastarfi, kennslu og stjórnun.

Nýútskrifuðum ökukennurum óskað til hamingju

Ekill ökuskóli bauð nýútskrifuðum ökukennurum til útskriftarhittings í húsnæði ICS að Turnahvarfi 2 í Kópavogi síðastliðinn fimmtudag. Mætingin var góð, stemningin var einstaklega ánægjuleg og hópurinn frábær. Tilefnið var að óska nýjum ökukennurum innilega til hamingju með stóran áfanga og bjóða þau velkomin í stétt ökukennara.