- Netökuskóli Ekils
- Ökuréttindi
- Námskeiðin okkar
- Námsgögn
- Verðskrá
Við hjá Ekli ökuskóla bjóðum nú upp á verklega þjálfun og próftöku á fullkomnum vinnuvélahermi frá Tenstar Simulation – einum þeim fremsta á markaðnum.
Hvað bjóðum við upp á?
Verklega þjálfun á vinnuvélahermi fyrir margvíslegar vinnuvélar
Próftöku á hermi með viðurkenndum prófdómurum á staðnum
Aðstoð við bókun verklegrar próftöku hjá Vinnueftirlitinu
Að stöðnu verklegu prófi fær nemandi vinnuvélaskírteini sent í pósti
Fyrir hvern?
Þeir sem hafa lokið bóklegu vinnuvélanámi og skriflegu prófi geta skráð sig beint í verklega þjálfun og próf hjá okkur. Þetta á við um þá sem sækja sér réttindi á almennt notaðar vinnuvélar. Bókaðu tíma á ekill@ekill.is.
Hvað þarf ég marga tíma?
Námsskrá er með leiðbeinandi reglur þess efnis að nemandi þurfi amk 16 verklegar kennslustundir. Við göngum þó út frá því að nemandi sé klár í verklegt próf.
Hvað kostar þetta ?
Verkleg kennslustund á hermi er 45 mín og kostar 10.000 kr.
Verklegt próf kostar að jafnaði 19.523 kr.
Hvað þarf að hafa í huga ?
Þú þarft að verða þér út um vottorð frá lækni ef þú ert að taka kranapróf.
Nauðsynlegt er að vera með góða sjón, heyrn og hreyfigetu til að stjórna krana. Senda þarf læknisvottorð áður en verklegt kranapróf fer fram.
Vottorðið þarf að staðfesta eftirfarandi:
• Sjón: ≥0,8 á betra auga og ≥0.1 á verra auga (með gleraugu)
• Sjónsvið eðlilegt
• Heyrn eðlileg
• Limaburður eðlilegur og óhindraður
• Umsækjandi sé hraustur að öðru leyti og hann hafi ekki sjúkdóm, eða taki lyf eða önnur efni sem trufla dómgreind eða geta valdið skyndilegum meðvitundarmissi. Vottorð þarf að vera yngra en sex mánaða.
Í stað læknisvottorðs má framvísa skírteini um aukin ökuréttindi sem er yngra en 6 mánaða.
Réttindaflokkar sem við bjóðum upp á:
✅ Flestir algengustu vinnuvélaflokkar
A - Staðbundnir kranar og byggingarkranar
B - Farandkranar stærri en 18 tonnmetrar
D - Kranar 18 tonnmetrar eða minni
E - Gröfur stærri en 4 tonn
F - Hjólaskóflur
G - Jarðýtur
H - Vegheflar
I - Dráttarvélar og minni jarðvinnuvélar
J - Lyftarar með 10 tonna lyftigetu eða minna
P - Hleðslukranar með 18 tonnmetra lyftigetu eða minna
❌ Við bjóðum ekki upp á kennslu og próftöku fyrir eftirfarandi flokka:
C – Brúarkranar
K – Lyftarar með meira en 10 tonna burðargetu
L – Valtarar
M – Malbikunarvélar
Vertu í stakk búinn, með raunverulega reynslu áður en þú ferð út á vinnusvæðið.
Þú bókar tíma með því að hafa samband við okkur á ekill@ekill.is - þú fylgist með tímabókunum þínum í Noona appinu !