D og DE

D réttindi (stór hópbifreið)

Réttindaflokkur D gefur réttindi til að aka stóra hópbifreið í atvinnuskyni. Sá sem fær D réttindi getur starfað við akstur hópbifreiða og er heimilt að taka gjald fyrir aksturinn. Þá gefur þessi réttindaflokkur réttindi til að mega aka bifreiðinni með eftirvagni sem er að heildarþunga 750 kg. Til þess að mega draga þyngri eftirvagn þarf að taka eftirvagnaréttindi flokk DE.

Aldurskröfur fyrir D réttindi er 23 ára. Þá þarf viðkomandi að hafa fullnaðar ökuskírteini í flokki B.

Svör við öðrum algengum spurningum má finna hér fyrir neðan. Ef þú hefur einhverjar aðrar spurningar hvetjum við þig til að hafa samband við okkur og við svörum eftir bestu getu.

Algengar spurningar

Hvenær má taka D réttindi?

Einstaklingur sem hefur náð 23 árs aldri og hefur fullnaðarökuskírteini getur fengið D réttindi.

Hversu mikið bóklegt nám þarf ég að taka fyrir D réttindi?

Taka þarf 100 kennslustundir. Það samanstendur af grunnhluta námskeiðsins sem er 52 stundir ásamt framhaldshlutanum sem er 48 kennslustundir. Í dögum talið er það 20 virkir dagar. 

  • Umferðafræði - 12 kennslutímar
  • Umferðasálfræði - 12 kennslutímar
  • Skyndihjálp - 16 kennslutímar
  • Bíltækni - 12 kennslutímar
  • Stór ökutæki - 32 kennslutímar
  • Ferða- og farþegafræði - 16 kennslustundir

Hvað þarf ég að taka marga ökutíma?

12 verklega tíma í akstri að viðbættum tvöföldum próftíma, samtals 14 tíma.
Athugið að þeir sem hafa C réttindi þurfa aðeins að taka 8 verklega tíma ásamt tvöföldum próftíma, samtals 10.  

Hvað þarf ég að gera til mega keyra eftirvagn sem er þyngri en 750kg?

Til þess að mega keyra eftirvagn/tengitæki sem er þyngra en 750 kg þá þarf að taka DE réttindi. Hægt er að lesa meira um DE réttindi með því að smella hér

Fæ ég atvinnuréttindi á D eftir námið?

Já. 

Verðskrá fyrir D

Almennt verð fyrir D1 réttindi er 450.000 -kr. en innifalið í því er allt bóklegt og verklegt nám. 

Þeir sem hafa tekið meiraprófið áður og fengið C eða B/far (leigubíll) þurfa ekki að greiða fullt námskeiðsgjald.

Réttindi

Fjöldi ökutíma

Verð

D réttindi

12 ökutímar + próftími

450.000 -kr.

D réttindi, viðbót við leigubílaréttindi (B/Far) 

12 ökutímar + próftími

340.000 -kr. 

D réttindi, viðbót við C og B/far 

8 ökutímar + próftími

230.000 -kr.

D réttindi, viðbót við C 

8 ökutímar + próftími

250.000 -kr.

 

Fæ ég D1 og B/Far réttindi með D réttindum?

Sá sem hefur tekið D réttindi fær D1 og B/Far (BFF) réttindi. Til þess hinsvegar að mega keyra leigubíl er nauðsynlegt að sitja námskeið sem kallast Harkaranámskeið. Ekill Ökuskóli er ekki með slíkt námskeið hjá sér. 

DE réttindi

Réttindaflokkur DE gefur réttindi til að aka hópbifreið í flokki D með eftirvagni sem er þyngri en 750 kg að heildarþunga. Þeir nemendur sem taka eftirvagnaréttindi í flokki DE og gilda þau réttindi einnig fyrir CE.

Athugið að til að taka DE réttindi þarf viðkomandi að hafa lokið D réttindum. 

Svör við öðrum algengum spurningum má finna hér fyrir neðan. Ef þú hefur einhverjar aðrar spurningar hvetjum við þig til að hafa samband við okkur og við svörum eftir bestu getu.

Algengar spurningar

Hvenær má taka DE réttindi?

Einstaklingur sem hefur náð 23 ára aldri og hefur fullnaðarökuskírteini getur fengið DE réttindi.

Þarf ég að bæta einhverju við bóklega námið til að mega taka DE réttindi?

Þegar tekið er DE réttindi þarf nemandinn einnig að sitja þrjár kennslustundir af því sem kallast Eftirvagnar stórra ökutækja. Þetta er hluti af framhaldsnámskeiði meiraprófsins. Best er að skoða stundarskrá hverju sinni til að sjá hvenær þetta er kennt. 

Hvað þarf ég að taka marga ökutíma?

7 verklega tíma í akstri að viðbættum próftíma, samtals 8 tíma.

Fæ ég einnig CE og D1E réttindi ef ég tek DE réttindi?

Já. Sá sem er með DE fær einnig CE, D1E sem og BE réttindi  

Verðskrá fyrir DE

Verðið á DE réttindum er 160.000 kr. en innifalið í því er bóklegt og verklegt nám ásamt verklegum próftíma. Athugið að ef þörf er á fleiri verklegum tímum en þeim 7 sem nefndir eru hér fyrir ofan þarf að greiða það sérstaklega.

Hafi viðkomandi D1E þarf aðeins að taka 4 ökutíma ásamt próftíma og lækkar þá námsgjaldið niður í 135.000 -kr.

Sjá verðskrá Ekils