Almenn ökuréttindi

 B réttindi / almenna bílprófið


Fólksbíll/Jeppi

Þegar unglingur hefur náð 16 ára aldri má hann byrja ökunám á bifreið. Taka þarf bóklegt og verklegt nám sem samanstendur af námskeiðum sem kallast Ö1, Ö2 og Ö3.

Námskeiðin Ö1 og Ö2 er hægt að taka í fjarnámi hjá Ekli ökuskóla. Að loknu Ö1 námskeiði og 10 verklegum ökutímum getur nemandi fengið útgefið æfingaleyfi og hafið æfingaakstur undir leiðsögn, oftast eru það foreldrar sem taka þá leiðsögn að sér.

Seinni hluti ökunáms, hefst alla jafna tveim mánuðum fyrir 17 ára afmælisdaginn, þá tekur nemandi Ö2 námskeið og verklegt Ö3 námskeið ásamt 6 verklegum tímum hjá ökukennara. Verklegir tímar eru um 16 í heildina, nemendur geta þó þurft fleiri tíma en það er mat nemanda og kennara hverju sinni.

Skrá mig í Ö1 eða Ö2

Algengar spurningar

Áður en ökunám hefst

Þrátt fyrir að aðeins megi hefja ökunám við 16 ára aldur geta ökunemi og forráðamenn hafið undirbúning á náminu áður en þeim aldri er náð.

  • Finna ökukennara: Það er á ábyrgð nemanda að finna ökukennara. Þekki nemandinn kennara má hafa beint samband við ökukennarann áður en 16 ára aldrinum er náð og margir skipuleggja fyrsta ökutímann á 16 ára afmælisdaginn. Hafir þú engan ökukennara í huga getur þú haft samband við Ekil Ökuskóla og óskað eftir aðstoð við að finna ökukennara. Einnig má sjá lista yfir alla skráða ökukennara á vef ökukennarafélagsins en þar má sía út kennara eftir landshluta, tungumáli og fleiru. 
  • Fylgigögn umsóknar um ökuskírteini: Þegar nemandinn hefur náð 16 ára aldri getur hann sótt um námsheimild til ökunáms á vef Ísland.is. Þeirri umsókn þurfa í kjölfarið að fylgja fylgigögn sem skila þarf til Sýslumannsins. Þau gögn sem um ræðir eru:
    • Passamynd á ljósmyndapappír í stærðinni 35x45 mm, með einlitum bakgrunn ásamt því að gefa undirritun ásamt því að framvísa persónuskilríki.
    • Ef einni eða fleiri heilsufarsspurningu er svarað játandi í umsóknarferlinu þarf einnig að skila inn læknisvottorði á skrifstofu sýslumanns. Hægt er að hafa samband við heimilislækni og óska eftir slíku vottorði. 
  • Velja ökuskóla: Við viljum sérstaklega benda nemendum á að hvorki ökukennurum eða öðrum er tengjast ökunámi nemandans er heimilt að tilneyða nemendur til að velja einn ökuskóla fram yfir annan. Það er val nemanda hvaða ökuskóla hann tekur og viljum við eindregið hvetja nemendur til að kynna sér kosti og galla ökuskóla áður en þeir hefja ökunám. 

Fyrstu skrefin (þegar 16 ára aldri er náð)

Þegar einstaklingur hefur náð 16 ára aldri má hann formlega hefja ökunámið. Það sem hann getur nú gert er eftirfarandi:

  • Sækja um námsheimild: Allir sem ætla hefja ökunám verða að sækja um námsheimild hjá Sýslumanni á vef Ísland.is. Umsóknin er rafræn en greiða þarf fyrir hana 4.300 -kr. Við minnum á að skila þarf inn fylgigögnum á skrifstofu Sýslumannsins svo að umsóknin stofnist formlega hjá Sýslumanninum. Sé það ekki gert getur það tafið ökunámsferlið en nemendur geta til að mynda ekki hafið æfingaakstur nema öll fylgigögnum hafi verið skilað. 
  • Fyrsti ökutíminn: Líkt og fram hefur komið er algengt að nemendur bóki fyrsta ökutímann sinn á 16 ára afmælisdaginn en það er frá og með þeim degi sem hefja má ökutíma. 
  • Hefja bóklegt ökunám: Líkt og með ökutímann getur nemandinn einnig hafið bóklegt ökunám. Fyrst þarf nemandinn að taka Ökuskóla 1 og ráðleggja ökuskólar sem og ökukennarinn að Ökuskóli 1 sé tekinn samhliða ökutímum. Með því getur nemandinn beitt þeirri þekkingu sem þeir öðlast í gegnum Ökuskóla 1 í fyrstu ökutímunum. 

Ökuskóli 1

Ekill Ökuskóli hefur boðið upp á ökunám í fjarnámi og hefur skólinn verið þar í fararbroddi í tæp 20 ár. Í Ökuskóla 1 lærir nemandinn almennt um ökuréttindi, umferðarmerki, umferðarlög og fleira sem hann þarf til að geta tekið sín fyrstu skref í umferðinni. 
Námið samanstendur af sex lotum og sex prófum. 

 Skrá mig í Ökuskóla 1

Hvenær má skrá sig í ökuskóla 2

Alla jafna hefst seinni hluti ökunáms tveimur mánuðum fyrir 17 ára afmælisdaginn. Þá er hægt að skrá sig í Ökuskóla 2 ásamt því að klára þá ökutíma sem standa eftir. Ekill Ökuskóli bíður einnig upp á Ökuskóla 2 á sama hátt og Ökuskóla 1. 

Skrá mig í Ökuskóla 2

Hvenær má skrá sig í ökuskóla 3 

Nemendur sem hafa lokið við Ökuskóla 1 ásamt 10 ökutímum geta farið í Ökuskóla 3. Ekki er lengur gerð krafa á að hafa lokið við Ökuskóla 2 á unda. 

Athugið að Ekill bíður ekki upp á ökuskóla 3. Hægt er að skrá sig í Ökuskóla 3 hjá Ökugerði á Akureyri eða hjá Ökuskóla 3 í Reykjavík.

Á Ö3 námskeiði er farið í gegnum forvarnir, 5 tíma kennsla sem er blönduð sýni- og fræðileg kennsla þar sem nemandinn er látinn aka skriðvagni (skidcar) sem er sérstaklega útbúinn bíll til æfinga á lokuðu svæði.

 

Get ég valið hvort ég læri á beinskiptan eða sjálfskiptan bíl?

Slíkt er ekkert vandamál. Athugið að ef tekið er próf á sjálfskiptan bíl má sá hinn sami ekki keyra beinskiptan bíl en sjá sem tekur próf á beinskiptan bíl fær réttindi á báðar tegundir. 

 

Hvað fylgir B réttindum?

  • Almenn ökuréttindi í flokki B veita rétt til að aka fólksbifreið að hámarksþyngd 3.500 kg og 8 farþega auk ökumanns.
  • Sendibifreið sem er allt að 3.500 kg.
  • Þá má draga kerru sem er allt að 750 kg að heildarþyngd ef bílinn sem dregið er með er 3.500 kg. Draga má þyngri kerru en 750 kg en þá má sameiginlegur þungi beggja ökutækja ekki fara yfir 3.500 kg. Þ.e.a.s að bílinn og kerran mega þá ekki sameiginlega fara yfir 3.500 kg í heildarþunga. Lesa má meira um almennt kerruréttindi með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.
    Nánar um kerruréttindi 
  • Dráttarvél.
  • Vinnuvél, bara keyra hana en ekki vinna á vinnuvélinni.
  • Létt bifhjól, vespu.
  • Bifhjól á þremur hjólum, fjórhjól eða hjól á fleiri hjólum.
  • Torfærutæki, t.d snjósleða, torfærubifhjól.

Verðskrá

Verklegt og bóklegt nám hjá Ekil Ökuskóla

Verð

Verklegir tímar (16 + próftími) 

264.000 -kr.

Ökuskóli 1

11.000 -kr.

Ökuskóli 2 

11.000 -kr.

Samtals

286.000 -kr.

 

Annar kostnaður sem nemandinn kann að standa straum af má sjá hér fyrir neðan. 

Kostnaðarliður

Verð

Prófgjald Frumherja, bóklegt

7.090 -kr.

Prófgjald Frumherja, verklegt

18.820 -kr.

Ökuskírteini hjá Sýslumanni, fyrsta ökuskírteini/bráðabirgðaskírteini

4.300 -kr.

Ökuskóli 3 Akureyri (okugerdi.is)

54.000 -kr.

Ökuskóli 3 Hafnarfirði (okuskoli3.is)

53.300 -kr.

Prentuð bók, Út í umferðina - Námsefni fyrir B réttindi m/ send.kostn

9.000 -kr.


Sjá námskrá.