Sumarlokun

Ekill ökuskóli lokar fyrir símsvörun frá 1. júlí til 4. ágúst vegna sumarleyfa. Verklegir tímar og p…
Ekill ökuskóli lokar fyrir símsvörun frá 1. júlí til 4. ágúst vegna sumarleyfa. Verklegir tímar og próf halda óbreytt áfram.

Kæru nemendur og viðskiptavinir.

Við hjá Ekli ökuskóla ætlum að leyfa fólkinu okkar að safna kröftum eftir annasamt og skemmtilegt skólaár.

Frá og með 1. júlí til og með 4. ágúst verður því lokað fyrir símsvörun hjá okkur. Skrifstofan verður undirmönnuð á meðan sumarleyfum stendur og því náum við ekki að sinna símanum með þeim hætti sem við viljum. Verklegir tíma og próf verða áfram með óbreyttu sniði og bókanlegir í gegnum Noona eða á ekill@ekill.is.

Tölvupósturinn okkar verður hins vegar opinn og við munum leitast við að svara erindum eins reglulega og hægt er á netfanginu ekill@ekill.is.

Dagskrá haustannar verður birt á næstu dögum og hvetjum við nemendur til að fylgjast vel með og skrá sig tímanlega. Með því er hægt að tryggja sér sæti á námskeiðum haustsins.

Við þökkum ykkur kærlega fyrir skilninginn og óskum ykkur öllum ánægjulegs sumars.

Starfsfólk Ekils ökuskóla