- Netökuskóli Ekils
- Ökuréttindi
- Námskeiðin okkar
- Námsgögn
- Verðskrá
Ekill ökuskóli bauð nýútskrifuðum ökukennurum til útskriftarhittings í húsnæði ICS að Turnahvarfi 2 í Kópavogi síðastliðinn fimmtudag.
Mætingin var góð, stemningin var einstaklega ánægjuleg og hópurinn frábær. Tilefnið var að óska nýjum ökukennurum innilega til hamingju með stóran áfanga og bjóða þau velkomin í stétt ökukennara.
Ökukennaranám Endurmenntunar Háskóla Íslands er starfsmenntun sem undirbýr nemendur undir starf ökukennara og nýtist jafnframt víðar á sviði umferðarmála. Námið samsvarar 30 ECTS einingum og er unnið í samstarfi við Samgöngustofu og Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Á samkomunni ávarpaði Grétar Viðarsson, stofnandi Ekils ökuskóla, hópinn og bauð nýútskrifaða ökukennara velkomna í samstarfshóp Ekils.
Í ávarpi sínu minnti Grétar á merkingu orðsins „ekill“, sem er gamalt íslenskt orð yfir ökumann. Hann fór einnig yfir sögu Ekils, en Ekill var frumkvöðull í fjarnámi í ökunámi á Íslandi þegar bóklegt ökunám í fjarnámi var sett í loftið árið 2004 í samstarfi við Jónas Helgason, menntaskólakennara og ökukennara á Akureyri.
Frá upphafi hefur starfsemi Ekils byggst á reynslu, fagmennsku, nýsköpun, sterku tengslaneti ökukennara og þægilegri þjónustu fyrir bæði nemendur og ökukennara. Einkunnarorð Ekils er fagmennska.
Í ræðu sinni lagði Grétar áherslu á að ökukennsla væri ábyrgðarstarf. Umferðin kostar á hverju ári mannslíf og veldur alvarlegum slysum sem geta haft varanleg áhrif á einstaklinga og fjölskyldur þeirra. Því skipti miklu máli að allir sem koma að ökunámi sinni starfi sínu af ábyrgð, metnaði og fagmennsku.
Hann ræddi einnig mikilvægi samstarfs og tengslanets meðal ökukennara. Starf ökukennara getur oft verið nokkuð einangrað, þar sem kennarar starfa hver í sínu horni og hafa takmörkuð dagleg samskipti við kollega. Hjá Ekli hefur því verið lögð áhersla á að byggja upp öflugt samfélag ökukennara þar sem hægt er að leita ráða, deila reynslu og styðja hvert annað í starfi.
Á sama tíma hefur Ekill lagt ríka áherslu á nýsköpun í kennslu og þjónustu. Markmiðið hefur alltaf verið að einfalda ferlið fyrir nemendur og ökukennara, spara tíma og skapa betri upplifun fyrir alla sem koma að ökunámi.
Grétar þakkaði einnig starfsfólki Ekils sérstaklega fyrir þeirra framlag og sagði árangur Ekils ekki hafa orðið að veruleika án þess starfsfólks sem hefur byggt upp mikla reynslu, þekkingu og þjónustulund innan fyrirtækisins.
Að lokum voru nýútskrifaðir ökukennarar hvattir til að kynna sér þá möguleika sem felast í samstarfi við Ekil. Dyr Ekils standa þeim opnar með margvíslegum hætti, hvort sem er í gegnum kennslukerfi, tengslanet, ráðgjöf eða annað samstarf á sviði ökunáms.
Við hjá Ekli óskum öllum nýútskrifuðum ökukennurum innilega til hamingju með áfangann og bjóðum þau hjartanlega velkomin í stétt ökukennara.
Framtíð ökunáms byggist á fagmennsku, ábyrgð og góðu samstarfi — og það var ánægjulegt að sjá svo öflugan hóp nýrra ökukennara koma saman af þessu tilefni.