- Netökuskóli Ekils
- Ökuréttindi
- Námskeiðin okkar
- Námsgögn
- Verðskrá
Ekill ökuskóli býður Ragnar Jón Ragnarsson, eða Huma eins og flestir þekkja hann, hjartanlega velkominn í hóp ökukennara hjá Ekli.
Humi útskrifaðist í gær sem ökukennari með heimild til að kenna bæði almenn ökuréttindi og aukin ökuréttindi. Hann mun starfa með Ekli á höfuðborgarsvæðinu og kenna bæði nemendum í almennu ökunámi og nemendum sem sækja sér aukin ökuréttindi.
Humi er grunnskólakennari á unglingastigi og hefur meðal annars kennt við Háteigsskóla. Auk þess er hann nuddari, eiginmaður, faðir og tónlistarmaður í hljómsveitinni Urmull og Kraðak. Hann kemur því með fjölbreytta reynslu, mannlega nálgun og sterkan kennslubakgrunn inn í starf ökukennarans.
Humi er þó ekki nýr í starfi með Ekli. Hann hefur kennt hjá Ekli ökuskóla í nokkur ár á fræðilegum meiraprófsnámskeiðum og þekkir því vel til kennslunnar, áherslna skólans og þess faglega starfs sem fram fer innan Ekils. Hann hefur þannig fengið góðan aðlögunartíma og er þegar orðinn hluti af okkar öfluga kennara- og samstarfshópi.
Frá áramótum hefur Humi unnið að yfirferð á Ökuskóla 1 og Ökuskóla 2 ásamt því að útbúa æfingapróf með Guðjóni hjá Ekli. Sú vinna mun nýtast nemendum okkar vel, enda stendur til að setja bráðlega í gang, ný og uppfærð Ö1 og Ö2 námskeið þar sem þekking Huma á fræðslu fyrir ungmenni fær að njóta sín.
Það er okkur sérstaklega dýrmætt að fá til liðs við okkur ökukennara sem hefur djúpa innsýn í heim ungmenna. Humi hefur kennt unglingum í fjölda ára og er sjálfur faðir tveggja ungmenna. Hann þekkir því vel þau ólíku viðfangsefni sem ungmenni standa frammi fyrir og hefur sérstakt lag á að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir.
Hann hefur jafnframt mikinn áhuga á að styðja við nemendur sem glíma við kvíða eða þurfa á aukinni þolinmæði, skilningi og einstaklingsmiðaðri nálgun að halda. Slík nálgun er afar mikilvæg í ökunámi, þar sem nemendur eru að stíga stór og ábyrgðarmikil skref í átt að auknu sjálfstæði í umferðinni.
Hjá Ekli leggjum við mikla áherslu á fagmennsku, góða kennslu og traust samband milli nemenda og ökukennara. Við erum sannfærð um að reynsla Huma, kennarahæfileikar og einstök nálgun muni nýtast nemendum Ekils afar vel.
Við hlökkum mikið til áframhaldandi samstarfs og bjóðum Huma innilega velkominn í Ekils fjölskylduna.
Til hamingju með áfangann, elsku Humi — og velkominn til starfa sem ökukennari hjá Ekli.
Þið hafið sambandi við Huma á humi@ekill.is eða í gegnum ekill@ekill.is