Vinnuvélanámskeið 25.maí - 3.júní

Skráning er hafin á vinnuvélanámskeið sem við vonumst til að geti farið af stað í lok maí dagana 25.maí - 3.júní.

Kennt verður:

25.maí 9:00-16:00 

26.maí 17:30-22:00

27.maí-28.maí 9:00-16:00

29.maí-2.júní 17:30-22:00

3.júní 9:00-16:00

 

Stóra vinnuvélanámskeiðið er 80 kennslustunda námskeið og kostar bóklegi hlutinn 98.000 kr. sjá verðskrá.

Námskeiðið gildir fyrir alla vélaflokka sem krafist er réttinda á:

 

  • Staðbundnir kranar og byggingarkranar - A flokkur
  • Farandkranar og hleðslukranar stærri en 18 tm - B flokkur
  • Brúkranar (ekki almennt krafist réttinda) - C flokkur
  • Körfukranar og steypudælu kranar - D flokkur
  • Gröfur þyngri en 4000 kg - E flokkur
  • Hjólaskóflur - F flokkur
  • Jarðýtur - G flokkur
  • Vegheflar - H flokkur
  • Minni jarðvinnuvélar og dráttarvélar með tækjabúnaði - I flokkur
  • Lyftarar með 10 tonna lyftugetu og minni - J flokkur
  • Lyftarar með meiri en 10t lyftigetu - K flokkur
  • Valtarar - L flokkur
  • Útlagningarvélar - M flokkur
  • Hleðslukranar minni en 18 tm - P flokkur