Vinnuvélanámskeið
					 
				Skráning er hafin á vinnuvélanámskeið sem fer af stað 25. mars. 
Kennt er frá 17:30 - 22:00 föstudags og mánudags kvöld og 09:00 - 16:00 um helgar. Námskeiðið eru þrjár helgar.
Stóra vinnuvélanámskeiðið er 80 kennslustunda námskeið og kostar bóklegi hlutinn 98.000 kr. sjá verðskrá.
Námskeiðið gildir fyrir alla vélaflokka sem krafist er réttinda á:
 
- Staðbundnir kranar og byggingarkranar - A flokkur
 
- Farandkranar og hleðslukranar stærri en 18 tm - B flokkur
 
- Brúkranar (ekki almennt krafist réttinda) - C flokkur
 
- Körfukranar og steypudælu kranar - D flokkur
 
- Gröfur þyngri en 4000 kg - E flokkur
 
- Hjólaskóflur - F flokkur
 
- Jarðýtur - G flokkur
 
- Vegheflar - H flokkur
 
- Minni jarðvinnuvélar og dráttarvélar með tækjabúnaði - I flokkur
 
- Lyftarar með 10 tonna lyftugetu og minni - J flokkur
 
- Lyftarar með meiri en 10t lyftigetu - K flokkur
 
- Valtarar - L flokkur
 
- Útlagningarvélar - M flokkur
 
- Hleðslukranar minni en 18 tm - P flokkur