Námskröfur aukin ökuréttindi

Almennt nám til aukinna ökuréttinda

Sjá námskrá.

 

BFF réttindi / Leigubíll

Réttindaflokkur BFF gefur réttindi til að aka fólks- / sendibifreið fyrir allt að 8 farþega í atvinnuskyni, þ.e.a.s að taka gjald fyrir. Heildarþungi eftirvagns er 750 kg og þarf að bæta við sig BE réttindum til að mega aka með meiri þunga.  

Aldurskröfur fyrir BFF réttindi eru þau að viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og hafa fullnaðar ökuskírteini fyrir réttindaflokk B.  Hann þarf sem sagt að hafa endurnýjað B réttinda ökuskírteinið sitt í fullnaðarökuskírteini. 

Námskeið fyrir BFF réttindi inniheldur;   

  • Grunnnám 52 stundir. 
  • Ferðafræði 16 stundir. 
  • 3 verklega tíma í akstri að viðbættum próftíma, samtals 4 tíma.

Námsefni;  Námsefni grunnnáms sem er,

  • Umferðarfræði 12 kennslust.
  • Umferðarsálfræði 12 kennslust.
  • Bíltækni 12 kennslust.
  • Skyndihjálp 16 kennslust.  
  • Í framhaldsnámskeiði fyrir aukin ökuréttindi eru teknar 16 kennslustundir í Ferðafræði.

    Sjá námskrá.

C1 réttindi / 7.500kg.

Réttindaflokkur C1 gefur réttindi til að aka vörubifreið sem er allt að 7.500 kg að heildarþunga.  Þá gefur þessi réttindaflokkur réttindi til að aka bifreiðinni með eftirvagni sem er að heildarþunga 750 kg.  Til þess að mega draga þyngri eftirvagn þarf að taka eftirvagnaréttindi flokk C1E.

Aldurskröfur fyrir C1 réttindi eru þau að viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og hafa fullnaðar ökuskírteini fyrir réttindaflokk B.  Hann þarf sem sagt að hafa endurnýjað B réttinda ökuskírteinið sitt í fullnaðarökuskírteini. 

Námskeið fyrir C1 réttindi inniheldur;   

  • Grunnnám 52 stundir.
  • Stór ökutæki 10 stundir, ef ætlað er til atvinnuaksturs.
  • 6 verklega tíma í akstri að viðbættum próftíma, samtals 7 tíma.

Námsefni;  Námsefni grunnnáms sem er, Umferðarfræði 12 kennslust. Umferðarsálfræði 12 kennslust. Bíltækni 12 kennslust. Skyndihjálp 16 kennslust.  Í framhaldsnámskeiði fyrir aukin ökuréttindi eru teknar 10 kennslustundir í Stór ökutæki.

Sjá námskrá.


D1 réttindaflokkur

Réttindaflokkur D1 gefur réttindi til að aka hópbifreið fyrir 16 farþega í atvinnuskyni.  Sem táknar að með D1 réttindi getur viðkomandi aðili starfað við akstur slíkra bifreiða og er heimilt að taka gjald fyrir aksturinn.  Þá gefur þessi réttindaflokkur réttindi til að mega aka bifreiðinni með eftirvagni sem er að heildarþunga 750 kg.  Til þess að mega draga þyngri eftirvagn þarf að taka eftirvagnaréttindi flokk D1E.

Aldurskröfur fyrir D1 réttindi eru 21 árs aldur og að hafa fullnaðar ökuskírteini. 

Námskeið fyrir D1 réttindi inniheldur;  Sama og fyrir C1 að en taka þarf að auki Ferða- og farþegafræði 16 stundir. Þá þarf að taka 8 verklega tíma í akstri að viðbættum próftíma, samtals 9 tíma.

Hafi nemandi þegar tekið réttindi C1 þarf aðeins að bæta við 16 stundum í ferða- og farþegafræði og taka tvo tíma í akstri að viðbættum próftíma, samtals 3 tíma.

Námsefni;  Námsefni grunnnáms sem er, Umferðarfræði 12 kennslust. Umferðarsálfræði 12 kennslust. Bíltækni 12 kennslust. Skyndihjálp 16 kennslust.  Í framhaldsnámskeiði þarf að taka 10 kennslustundir í Stór ökutæki og 16 kennslustundir í Ferða- og farþegafræði.

Sjá námskrá.


C1E og D1E - Eftirvagna réttindaflokkur

Réttindaflokkur C1E og D1E gefur réttindi til að aka vörubifreið í flokki C1 eða hópbifreið í flokki D1 með eftirvagni sem er þyngri en 750 kg að heildarþunga.  Þó má sameiginlegur heildarþungi beggja ökutækja ekki fara yfir 12.000 kg 

Aldurskröfur er 18 ára og hafa fullnaðar ökuskírteini.  Fyrir C1E 18 ára og fyrir D1E 21 árs.

Námskeið fyrir E réttindaflokk (eftirvagna) inniheldur;  Bóklegt námskeið fyrir eftirvagna eru 4 kennslustundir sem er tekið í framhaldi af grunnnámi og þeim framhaldsgreinum sem taka þarf fyrir C1 og D1 réttindaflokka.  Verklegar kennslustundir fyrir eftirvagn í flokki C1 og D1 geta orðið allt að 4 kennslustundir sem fer eftir því hvaða réttindi hver og einn hefur fyrir í eftirvögnum.

Námsefni;  Námsefni grunnnáms,  námsefni framhaldsnámskeiðs eftir því hvort um er að ræða C1 eða D1 að viðbættum 4 kennslust. um eftirvagna. Þá þarf að taka 4 tíma í akstri með eftirvagn að viðbættum próftíma, samtals 5 tíma.

Sjá námskrá.


C réttindaflokkur (stór vörubifreið )

Réttindaflokkur C gefur réttindi til að aka vörubifreið sem er þyngri en 7.500 kg að heildarþunga. Þá gefur þessi réttindaflokkur réttindi til að aka bifreiðinni með eftirvagni sem er að heildarþunga 750 kg. Til þess að mega draga þyngri eftirvagn þarf að taka eftirvagnaréttindi flokk CE.

Aldurskröfur fyrir C réttindi eru 21 árs aldur og hafa fullnaðar ökuskírteini. Hann þarf sem sagt að hafa endurnýjað B réttinda ökuskírteinið sitt í fullnaðarökuskírteini. 

Námskeið fyrir C réttindi inniheldur;  

Grunnnám 52 stundir. Stór ökutæki 32 stundir. 12 verklega tíma í akstri að lágmarki að viðbættum próftíma, samtals 13 tíma.

Námsefni; Námsefni grunnnáms sem er, Umferðarfræði 12 kennslust. Umferðarsálfræði 12 kennslust. Bíltækni 12 kennslust. Skyndihjálp 16 kennslust.

Í framhaldsnámskeiði fyrir aukin ökuréttindi eru teknar 32 kennslustundir í Stór ökutæki sem samanstendur af námsefni um stjórnun stórra ökutækja og bíltækni stórra ökutækja.

Sjá námskrá.


D réttindaflokkur (stór hópbifreið)

Réttindaflokkur D gefur réttindi til að aka hópbifreið í atvinnuskyni, stór hópbifreið. Sem táknar að með D réttindi getur viðkomandi aðili starfað við akstur hópbifreiða og er heimilt að taka gjald fyrir aksturinn. Þá gefur þessi réttindaflokkur réttindi til að mega aka bifreiðinni með eftirvagni sem er að heildarþunga 750 kg. Til þess að mega draga þyngri eftirvagn þarf að taka eftirvagnaréttindi flokk DE.

Aldurskröfur fyrir D réttindi er 23 ára. Þá þaf viðkomandi að hafa fullnaðar ökuskírteini í flokki B.

Námskeið fyrir D réttindi inniheldur; Sama og fyrir C en taka þarf að auki Ferða- og farþegafræði 16 stundir. Þá þarf að taka 8 verklega tíma í akstri + próftíma en í hópbifreið er próftíminn tvær stundir, samtals 10 tíma.

Hafi nemandi ekki tekið réttindi C áður þarf hann að taka 12 verklega tíma í akstri og 2 tíma í pófi samtals 14 tíma.

Námsefni; Námsefni grunnnáms sem er, Umferðarfræði 12 kennslust. Umferðarsálfræði 12 kennslust. Bíltækni 12 kennslust. Skyndihjálp 16 kennslust. Í framhaldsnámskeiði þarf að taka 32 kennslustundir í Stór ökutæki og 16 kennslustundir í Ferða- og farþegafræði.

Sjá námskrá.


E réttindaflokkur (trailer)

Námskeið fyrir E réttindaflokk (eftirvagna) inniheldur;
Bóklegt námskeið fyrir eftirvagna, 4 kennslustundir sem er tekið í framhaldi af grunnnámi og þeim framhaldsgreinum sem taka þarf fyrir C og D réttindaflokka. Verklegar kennslustundir fyrir eftirvagn eru 7 kennslustundir og síðan próftími samtals 8 tímar.

Aldurskröfur 21 árs fyrir CE en 23 fyrir DE

Námsefni; Námsefni grunnnáms, námsefni framhaldsnámskeiðs eftir því hvort um er að ræða C eða D að viðbættum 4 kennslustundir í bóklegu efni um eftirvagna.

Þá er nóg fyrir nemandan að taka eftirvagnaréttindi í flokki CE og gilda þau réttindi einnig fyrir DE.

Sjá námskrá.