D / DE ökuréttindi - rúta / eftirvagn

D1 flokkur
Veitir rétt til að stjórna:

Ökutæki í flokki D, hópbifreið með sæti fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns.

Atvinnuréttindi.

D flokkur
Veitir rétt til að stjórna:

1. Hópbifreið með sæti fyrir fleiri en 8 farþega auk ökumanns.
2. Hópbifreið, skv. 1.tölul., með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heilarþyngd.
3. Liðvagni til fólksflutninga.

D 75 flokkur
Veitir rétt til að stjórna:

Hópbifreið með sæti fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns. Við bifreið í þessum flokki má tengja eftirvagn / tengitæki sem er ekki meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd. ( Undirflokkur D1 ).

D1E flokkur
Veitir rétt til að stjórna:

Ökutæki í flokki D með sæti fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns með tengdan eftirvagn/tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, enda sé:
a. leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 12.000 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins / tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins og eftirvagninn / tengitækið ekki notað til fólksflutninga.


DE flokkur
Veitir rétt til að stjórna:

Samtengdum ökutækjum með hópbifreið og eftirvagni / tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd.

 

DE 77 flokkur
Veitir rétt til að stjórna:

Ökutæki í flokki D, hópbifreið með sæti fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns (D1) með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, enda sé leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 12.000 kg eða minna.
Leyfð heildarþyngd eftirvagnsins / tengitækisins má ekki vera meiri en eigin þyngd dráttartækisins, eftirvagninn / tengitækið ekki notað til fólksflutninga (Undirflokkur D1E)

 

Námskröfur:

D1 réttindaflokkur

Réttindaflokkur D1 gefur réttindi til að aka hópbifreið fyrir 16 farþega í atvinnuskyni. Sem táknar að með D1 réttindi getur viðkomandi aðili starfað við akstur slíkra bifreiða og er heimilt að taka gjald fyrir aksturinn. Þá gefur þessi réttindaflokkur réttindi til að mega aka bifreiðinni með eftirvagni sem er að heildarþunga 750 kg. Til þess að mega draga þyngri eftirvagn þarf að taka eftirvagnaréttindi flokk D1E.

Aldurskröfur fyrir D1 réttindi eru 21 árs aldur og að hafa fullnaðar ökuskírteini.

Ábyrgð nemenda í verklegu prófi: Í verklegri kennslu telst ökukennari ökumaður bifreiðar skv.lögum og tryggingum. Í verklegu ökuprófi telst próftaki ökumaður og ber því ábyrgð á ökutækinu skv.því.

Námskeið fyrir D1 réttindi inniheldur; Sama og fyrir C1 að en taka þarf að auki Ferðafræði 16 stundir. Þá þarf að taka 8 verklega tíma í akstri að viðbættum próftíma, samtals 9 tíma.

Hafi nemandi þegar tekið réttindi C1 þarf aðeins að bæta við 16 stundum í ferðafræði og taka tvo tíma í akstri að viðbættum próftíma, samtals 3 tíma.

Námsefni; Námsefni grunnnáms sem er, Umferðarfræði 12 kennslust. Umferðarsálfræði 12 kennslust. Bíltækni 12 kennslust. Skyndihjálp 16 kennslust. Í framhaldsnámskeiði þarf að taka 10 kennslustundir í Stór ökutæki og 16 kennslustundir í Ferðafræði.

Sjá námskrá.

D réttindaflokkur (stór hópbifreið)

Réttindaflokkur D gefur réttindi til að aka hópbifreið í atvinnuskyni, stór hópbifreið. Sem táknar að með D réttindi getur viðkomandi aðili starfað við akstur hópbifreiða og er heimilt að taka gjald fyrir aksturinn. Þá gefur þessi réttindaflokkur réttindi til að mega aka bifreiðinni með eftirvagni sem er að heildarþunga 750 kg. Til þess að mega draga þyngri eftirvagn þarf að taka eftirvagnaréttindi flokk DE.

Aldurskröfur fyrir D réttindi er 23 ára. Þá þaf viðkomandi að hafa fullnaðar ökuskírteini í flokki B.

Ábyrgð nemenda í verklegu prófi: Í verklegri kennslu telst ökukennari ökumaður bifreiðar skv.lögum og tryggingum. Í verklegu ökuprófi telst próftaki ökumaður og ber því ábyrgð á ökutækinu skv.því.

Námskeið fyrir D réttindi inniheldur; Sama og fyrir C en taka þarf að auki Ferðafræði 16 stundir. Þá þarf að taka 12 verklega tíma í akstri + próftíma en í hópbifreið er próftíminn tvær stundir, samtals 14 tíma.

Hafi nemandi tekið réttindi í flokki C áður þarf hann að taka 8 verklega tíma í akstri á hópbifreiðina og 2 tíma í pófi samtals 10 tíma.

Námsefni; Námsefni grunnnáms sem er, Umferðarfræði 12 kennslust. Umferðarsálfræði 12 kennslust. Bíltækni 12 kennslust. Skyndihjálp 16 kennslust. Í framhaldsnámskeiði þarf að taka 32 kennslustundir í Stór ökutæki og 16 kennslustundir í Ferða- og farþegafræði.

Sjá námskrá.

BE, C1E og D1E - Eftirvagna réttindaflokkur

Réttindaflokkur BE veitir ökuréttindi til að aka bifreið í flokki B með eftirvagn sem er þyngri en 750 kg. ATH að öruggast er að skoða í skráningaskírteini hvers ökutækis hvað ökutækið má draga þungan eftirvagn og er þá alltaf farið eftir heildarþunga eftirvagnsins ekki eigin þyngd.
Réttindaflokkur C1E og D1E gefur réttindi til að aka vörubifreið í flokki C1 eða hópbifreið í flokki D1 með eftirvagni sem er þyngri en 750 kg að heildarþunga. Þó má sameiginlegur heildarþungi beggja ökutækja ekki fara yfir 12.000 kg ( 12 tonn ).

Aldurskröfur fyrir BE réttindi er 18 ára aldur og hafa fullnaðar ökuskírteini. Fyrir C1E 18 ára og fyrir D1E 21 árs.

Ábyrgð nemenda í verklegu prófi: Í verklegri kennslu telst ökukennari ökumaður bifreiðar skv.lögum og tryggingum. Í verklegu ökuprófi telst próftaki ökumaður og ber því ábyrgð á ökutækinu skv.því.

Námskeið fyrir E réttindaflokk (eftirvagna) inniheldur; Bóklegt námskeið fyrir eftirvagna eru 4 kennslustundir sem er tekið í framhaldi af grunnnámi og þeim framhaldsgreinum sem taka þarf fyrir C1 og D1 réttindaflokka. Verklegar kennslustundir fyrir eftirvagn í flokki C1 og D1 geta orðið allt að 4 kennslustundir sem fer eftir því hvaða réttindi hver og einn hefur fyrir í eftirvögnum.

Námsefni; Námsefni grunnnáms, námsefni framhaldsnámskeiðs eftir því hvort um er að ræða C1 eða D1 að viðbættum 4 kennslust. um eftirvagna. Þá þarf að taka 4 tíma í akstri með eftirvagn að viðbættum próftíma, samtals 5 tíma.

Sjá námskrá.

E réttindaflokkur (trailer)

Námskeið fyrir E réttindaflokk (eftirvagna) inniheldur;
Bóklegt námskeið fyrir eftirvagna, 4 kennslustundir sem er tekið í framhaldi af grunnnámi og þeim framhaldsgreinum sem taka þarf fyrir C og D réttindaflokka. Verklegar kennslustundir fyrir eftirvagn eru 7 kennslustundir og síðan próftími samtals 8 tímar.

Aldurskröfur 21 árs fyrir CE en 23 fyrir DE

Ábyrgð nemenda í verklegu prófi: Í verklegri kennslu telst ökukennari ökumaður bifreiðar skv.lögum og tryggingum. Í verklegu ökuprófi telst próftaki ökumaður og ber því ábyrgð á ökutækinu skv.því.

Námsefni; Námsefni grunnnáms, námsefni framhaldsnámskeiðs eftir því hvort um er að ræða C eða D að viðbættum 4 kennslustundir í bóklegu efni um eftirvagna.

Þá er nóg fyrir nemandan að taka eftirvagnaréttindi í flokki CE og gilda þau réttindi einnig fyrir DE.

Sjá námskrá.

Skrá mig á námskeið fyrir aukin ökuréttindi