Vinnuvélanámskeið 20.febrúar

Stóra vinnuvélanámskeiðið hefst 20.febrúar, ekki 21.febrúar eins og áður var auglýst og endar 29.febrúar. 

Námskeiðið gildir fyrir alla vélaflokka sem krafist er réttinda á og er 80 kennslustundir.

  • Staðbundnir kranar og byggingarkranar - A flokkur
  • Farandkranar og hleðslukranar stærri en 18 tm - B flokkur
  • Brúkranar (ekki almennt krafist réttinda) - C flokkur
  • Körfukranar og steypudælu kranar - D flokkur
  • Gröfur þyngri en 4000 kg - E flokkur
  • Hjólaskóflur - F flokkur
  • Jarðýtur - G flokkur
  • Vegheflar - H flokkur
  • Minni jarðvinnuvélar og dráttarvélar með tækjabúnaði - I flokkur
  • Lyftarar með 10 tonna lyftugetu og minni - J flokkur
  • Lyftarar með meiri en 10t lyftigetu - K flokkur
  • Valtarar - L flokkur
  • Útlagningarvélar - M flokkur
  • Hleðslukranar minni en 18 tm - P flokkur

Verð á námskeiðinu er 98.000 kr, við bendum nemendum á að kanna möguleika sína á styrk hjá stéttarfélagi.