🚒 Framtíðar slökkviliðsmenn þjálfaðir í óveðri á Akranesi

Hrönn búin að rúlla upp prófinu
Hrönn búin að rúlla upp prófinu

Nemendur sem stefna á störf hjá Slökkviliði Akraness leituðu til Ekill Ökuskóli með það markmið að afla sér C-réttinda og öðlast færni til að stjórna ökutækjum slökkviliðsins.

Kennslan fór fram á Akranesi dagana 16.–24. mars, þar sem Sigurður Þór Elísson, varðstjóri hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar og jafnframt ökukennari og meiraprófskennari hjá Ekli, tók að sér verklega þjálfun nemanna. Með þessari einstöku tengingu við raunverulegt starfsumhverfi fengu nemendur þjálfun sem endurspeglar þær kröfur sem gerðar eru til þeirra í starfi.

Veðrið setti svo sannarlega svip sinn á námskeiðið – en í stað þess að vera hindrun varð það að dýrmætri reynslu. Nemendur fengu fyrsta flokks þjálfun í krefjandi aðstæðum, þar á meðal akstri í óveðri og æfingum í að losa fastan flutningabíl.

Á prófdegi uppskáru nemendur erfiði sitt þegar allur hópurinn útskrifaðist með C-réttindi – tilbúinn til að takast á við mikilvægt hlutverk í samfélaginu. 

👉 Við hjá Ekli erum stolt af því að taka þátt í að undirbúa næstu kynslóð slökkviliðsmanna fyrir krefjandi og ábyrgðarfull störf.

Það var boðið upp á veitingar á prófdegi :)      Ekill 6 að virða fyrir sér lífið á Skaganum     Ekill 6 ber við Akrafjallið     Ekill6 hafði það fínt á Skaganum