Meirapróf og vinnuvélanámskeið

Volvo
Volvo

Á meiraprófsnámskeiðinu sem er að ljúka núna um þessa helgi eru 11 nemendur.  Nokkur fyrirspurn hefur verið um næsta námskeið og því hefur verið ákveðið að setja á meiraprófsnámskeið sem byrjar 23 nóvember og byrjar kennsla klukkan 17:30. Bóklegi þáttur námskeiðsins klárast 14 til 16 des eftir því hvaða ökuréttindi hver og einn hugsar sér að taka.

Sjá stundaskrá grunnnám HÉR.
Sjá stundaskrá framhald HÉR.

Skráning á námskeiðið HÉR.

Vinnuvélanámskeið er fyrirhugað þann 9 nóvember og byrjar kennsla klukkan 17:30. Hér er um að ræða stóra vinnuvélanámskeiðið.  
Kennt er frá 17:30 virka daga en frá 09:00 um helgar. Námskeiðið tekur yfir tvær helgar og virku dagana þar á milli.

Sjá Stundaskrá HÉR.
Skráning á námskeið HÉR.

  d 

Ef um frekari upplýsingar er að ræða þá er hægt að hafa símasamband í síma 4617800 - 8945985 eða á tölvupóst ekill@ekill.is.