Leiðbeiningar um akstur í snjó

Halldór Holt, skrifaði á dögunum, þegar allt ætlaði að ganga af göflunum í vetrarófærðinni, pistil um akstur í snjó. Það mætti líka kalla þetta leiðbeiningar frá manni með reynslu af ófærð en Halldór hefur starfað frá árinu 1984 við að keyra rútur, trailera, mokstursbíla og leigubíl. Hefur lagt að baki ca.3,5 milljónir ekinna km sem atvinnubílstjóri. Hann var lengi vel búsettur á Patreksfirði og er þar af leiðandi með viðamikla reynslu í aktri við vestfirskar aðstæður sem margur atvinnubílstjórinn myndi seint bjóða í og þá sérstaklega í vetrarfærð. Við erum svo heppin að vinna með Halldóri öðru hvoru í gegnu störf hans fyrir Ekju ehf vöruflutninga - en hans yfirvegun, þolinmæði og rólyndi er eitthvað sem góður og traustur ökumaður ætti að búa yfir. 

Leiðbeiningarnar kallar Halldór ,,Boðorðin 10" og eru þau unnin upp úr norskum texta.

Birt með góðfúslegu leyfi Halldórs.

BOÐORÐIN 10

  1. Mokstursbílar eru úti á vegunum til að gera veginn öruggan fyrir þig, sýndu virðingu.
  2. Haltu þig í hæfilegri fjarlægð frá mokstursbílnum, eitthvað getur gerst fyrir framan hann sem
    þú ekki sérð.
  3. Verðir þú að keyra framhjá, farðu varlega! Snjór og hálka á miklum hraða geta skapað
    hættulegar aðstæður.
  4. Þar sem mokstursbílar keyra í röðum til að ná sem bestum árangri við mokstur EKKI keyra
    framhjá/fram úr eða leggja þig á milli þeirra, það kemur í veg fyrir árangur þeirra og getur
    skapað stórhættulegar aðstæður.
  5. Í hringtorgum þarf mokstursbíllinn oftar en ekki að fara fleiri en einn hring. Farðu sérstaklega
    varlega og bíddu þar til hann hefur lokið öllum hringjunum.
  6. Í stoppistöðvum strætisvagna reynir mokstursbíllinn að halda óbreyttum hraða til að viðhalda
    snjóflæðinu frá plógnum. Ef þú ferð fram úr þar, þá er hætta á að þú lendir í blinda blettinum hjá
    honum þegar hann sveigir aftur út á akbrautina.
  7. Þegar miðja vegar er mokuð þarf mokstursbíllinn að skekka plóginn yfir á næstu akrein. Ef þú
    færð mokstursbíl á móti þér, dragðu þá úr hraða og leggðu þið eins langt til hægri og þú getur.
  8. Við mokstur á fjölakreina vegi er mokað frá vinstri til hægri og þá gæti verið snjór á hægri
    helmingi akreinar, ef þú ekur í snjóröndinni dreifir þú snjónum og skapar hættu fyrir þig og meiri
    vinnu fyrir mokstursmanninn.
  9. Mokstursbílar keyra yfirleitt á ca. 40 km hraða. Vertu þolinmóður.
  10. Mokstursbílstjórar eru ánægðir þegar þú sýnir aðgát og vinkar vinalega og ekki hika við að
    senda ÞUMALINN UPP.