Kynnum Guðjón Andra Jónsson – ökukennara hjá Ekli

Sumarið 2024
Sumarið 2024

Guðjón Andri er félagslyndur og jarðbundinn náungi sem hefur brennandi áhuga á akstri, fjallgöngum og að kynnast ólíku fólki. Hann er fæddur á Sturlu-Reykjum í Reykholtsdal og utan vinnu sækir hann orku úr náttúrunni, sérstaklega á hálendinu.

Ef Guðjón gæti farið hvert sem er í heiminum færi hann til Nýja-Sjálands en ef upp kæmi fríhelgi með skömmum fyrirvara myndi hann leita á hálendi Íslands fyrst og fremst. 

Guðjón hóf feril sinn sem ökukennari eftir margra ára reynslu sem píanókennari – þar lærði hann mikilvægi þess að vinna einn á einn með fólki og nýtti þá reynslu þegar hann skipti yfir í akstursskólann. Hann segir að það sem hafi dregið hann að starfinu sé möguleikinn á að kynnast fólki með ólíka sýn á lífið, sjá það taka framförum og vaxa.

Áherslur Guðjóns í starfi snúast um þolinmæði, heiðarleika og yfirvegun. Hann leggur mikið upp úr því að setja sig í spor nemandans og mæla ráð sín þannig að þau hjálpi fólki að læra á sínum hraða. Hann viðurkennir brosandi að starfið hafi kennt honum að fólk kemur alltaf á óvart og að hann geti alltaf lært eitthvað nýtt.

Þegar Guðjón er spurður um minnisstæðar sögur úr kennslunni rifjar hann upp nemanda sem svaf yfir sig og kom svo í tíma í náttfötunum – eitthvað sem þeir hlógu mikið af saman.

Guðjón sér framtíð ökukennslu þróast með aukinni tæknivæðingu, sérstaklega með nýjum hermum og aukinni þjálfun í hermiaðstæðum. Að hans mati væri eitt besta ráð sem hægt er að gefa nýjum kennara einfalt: „Vertu næs.“

Við hjá Ekli erum stolt af því að hafa Guðjón í okkar hópi – kennara sem leggur hjarta og sál í að gera upplifun nemenda bæði skemmtilega og faglega.

Hér má hlusta á tónlist sem kemur Guðjóni alltaf í gott skap en þau sem koma honum helst til að hlæja eru Jac og Guðrún ökukennarar Ekils í Hafnarfirði <3