- Netökuskóli Ekils
- Ökuréttindi
- Námskeiðin okkar
- Námsgögn
- Verðskrá
Í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga viljum við hjá Ekli ökuskóla senda kærleiks kveðjur til allra nemenda, kennara og samstarfsfólks – nær og fjær. Þjóðhátíðardagurinn minnir okkur á rætur okkar, sjálfstæði og samstöðu – og mikilvægi menntunar, frelsis og framtíðarsýnar.
Við erum stolt af því að fá að taka þátt í vegferð ykkar til þekkingar og velfarnaðar – og minnum á að menntun er einn mikilvægasti hornsteinn þjóðar og samfélags.
Einnig viljum við óska nýstúdentum til hamingju með áfangann, framtíðin er svo sannarlega björt <3
Að lokum deilum við ljóðlínunum úr skólasöng Menntaskólans á Akureyri, eftir skáldið Davíð Stefánsson, sem í senn tjá von, reisn og ábyrgð:
,,Enn er liðinn langur vetur,
loftin blá og jörðin græn.
Hefji hver sem hafið getur
huga sinn í þökk og bæn.
Svo skal lofa liðna daga
að líta fram og stefna hátt.
Þá fær Íslands unga saga
æðra líf og nýjan mátt."
- Davíð Stefánsson