Ekill þátttakandi í Jafnvægisvoginni

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni FKA sem unnið er í samstarfi við stjórnvöld og hagsmunaaðila í íslensku atvinnulífi. Markmiðið er að hlutfall hvors kyns verði að lágmarki 40% í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, opinberra stofnana, lífeyrissjóða og sveitarfélaga.

Vinnustaðir eru hvattir til að ganga til liðs við verkefnið með undirritun viljayfirlýsingar, setja sér skýr markmið og fylgja þeim eftir. Jafnvægisvogin stendur jafnframt fyrir greiningum, fræðslu og viðburðum, fylgist með þróun kynjajafnvægis og veitir árlega viðurkenningar til þeirra þátttakenda sem hafa náð markmiðinu.

Við hlökkum til að taka þátt í þessari vegferð og fá leiðsögn og fræðslu í þessum málum hjá FKA.