Vöruflutningar, Endurmenntun - Fjarfundur

Ótrygg hleðsla er ein helsta orsök alvarlegra umferðarslysa á vörubifreiðum. Farið er yfir þá krafta sem virka á ökutæki og farm þeirra í akstri sem og hvaða festingar tryggja farminn og hvers vegna. Fjallað er um ábyrgð bílstjóra á því að farmur sé tryggilega festur og örugglega sé gengið frá efnum sem geta mengað. Kynnt eru þau skjöl og leyfi sem nauðsynlegt er að þekkja og sem krafist er við vöruflutninga. Festibúnaður og yfirbreiðslur prófaðar.

Forkröfur náms: Ætlað atvinnubílstjórum í akstri ökutækja með ökuréttindaflokki D1 og D til farþegaflutninga í atvinnuskyni og í flokki C1 og C til vöruflutninga í atvinnuskyni. 
Atvinnubílstjórar sem fengu ökuréttindi sín fyrir 10. september 2013 þurfa að hafa lokið námskeiði fyrir 10. september 2018.

Lengd: 7 klst. með matar- og kaffihléum

Námsmarkmið: Markmiðið er að bílstjórinn gangi af öryggi frá og festi mismunandi tegundir farms. Bílstjóri þekki reglur um, notkun farm- og fylgiskjala sem krafist er í flutningum bæði innanlands sem og á milli landa.

Leiðbeinandi: Gunnar Kristinsson

Hvar: Ekill Ökuskóli fjarfundur 

Skráning