Farþegaflutningar, Endurmenntun - Fjarfundur

Farið er yfir ábyrgðarhlutverk bílstjóra með réttindi til að stjórna bifreið  í  D1-og  D-flokki  í  atvinnuskyni í  farþegaflutningum sem og þjónustuþáttinn í starfi hans.

Fjallað er um reglur um farþegaflutninga,s.s. leyfisveitingar og mikilvægi öryggis og aðbúnaður farþega.

Forkröfur náms: Ætlað atvinnubílstjórum í akstri ökutækja með ökuréttindaflokki D1 og D til farþegaflutninga í atvinnuskyni og í flokki C1 og C til vöruflutninga í atvinnuskyni. 
Atvinnubílstjórar sem fengu ökuréttindi sín fyrir 10. september 2013 þurfa að hafa lokið námskeiði fyrir 10. september 2018.

Lengd: 7 klst. með matar- og kaffihléum

Námsmarkmið: Markmiðið er að bílstjórinn þekki atriði er lúta sérstaklega að akstri hópbifreiða, farþegaflutningum, ábyrgð bílstjóra á öryggi farþega og almennt að þjónustuhlutverki bílstjóra, náttúruvernd, ferðamennsku, mjúkum akstri o.fl. Hann þekki ákvæði í lögum og reglum um flutning farþega og sérbúnað hópbifreiða.

Leiðbeinandi: Jónas Þór Karlsson

Hvar: EKILL FJARFUNDUR

Skráning