- Netökuskóli Ekils
- Ökuréttindi
- Námskeiðin okkar
- Námsgögn
- Verðskrá
-Only available in Icelandic at the moment-
Ekill Ökuskóli býður nú upp á grunnnámskeið vinnuvélaréttinda (Stóra vinnuvélanámskeiðið) í fjarnámi þar sem þú getur byrjað strax. Þú stjórnar ferðinni og horfir á fyrirlestra þegar þér hentar á þínum hraða.
Námskeiðið gildir fyrir alla vélaflokka sem krafist er réttinda á og er 60 kennslustundir. Námskröfur eru að nemandi hafi náð 17 ára aldri, en almenn ökuréttindi eru forsenda þess að geta verið með vinnuvélar í umferð utan lokaðra vinnusvæða. Námið er þó hægt að hefja 3 mánuðum fyrir 17 ára afmælið.
Bóklega námskeiðið kostar 98.000 kr
Eftir að nemandi hefur lokið við bóklegt námskeið og staðist bóklegt próf getur hann bókað tíma í verklega kennslu í vinnuvélahermi hjá Ekli ökuskóla á Akureyri eða í Hafnarfirði. Sjá nánar HÉR
Vinnueftirlit hefur heimilað þjálfun og próftöku í vinnuvélahermi og getur nemandi því lokið við bæði bóklegt og verklegt nám á allar gerðir vinnuvéla hjá Ekli ökuskóla.
Mundu að kanna styrk til náms hjá þínu stéttarfélagi.