Greiðsluskilmálar

Greiðslur vegna bóklegs náms í fjarnámi

Námsgjald á að greiða áður en nám hefst og telst skráning ekki gild fyrr en búið er að ganga frá greiðslu. Greiðslur fara fram á greiðslusíðu Teya en þar er hægt að greiða með öllum helstu greiðslukortum.
Vinsamlega athugið að eftir að nám er hafið og nemandinn hefur greitt námskeiðið hefur nemandi skuldbundið sig til að greiða allt námsgjaldið og er því ekki hægt að fá það fellt niður eða endurgreitt.

Gildistími námskeiðs

Samkvæmt reglum Samgöngustofu er varðar kröfur til Ökuskóla skal Ekill Ökuskóli setja kröfu að nemandi ljúki námskeiði í Ökuskóla 1 og Ökuskóla 2 á 30 dögum frá því að hann skráir sig á námskeiðið. Hafi nemandinn ekki lokið námskeiðinu eftir 30 daga fellur námskeiðið úr gildi og þarf nemandinn að kaupa námskeiðið að nýju.
Komi upp bilun eða vandamál í fjarnámskerfi getur nemandi óskað eftir að endurtaka námskeið. Í þeim tilfellum þarf nemandi ekki að greiða fyrir námskeiðið en hefja þarf námskeiðið að frá byrjun.

Öryggisskilmálar

Farið er með öll gögn og upplýsingar sem þátttakendur gefa upp í tengslum við skráningu á námskeið hjá Ekil Ökuskóla sem trúnaðarmál. Gögn og upplýsingar eru ekki afhentar eða áfram seldar til þriðja aðila.
Fyllsta öryggis er gætt með greiðslur fyrir námskeið og fara greiðslur með greiðslukortum í gegnum örugga greiðslusíðu Teya.

Lög og varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi norðurlands eystra.

Skilmálar vegna greiðslu á meiraprófsfjarnámi í Ekil Ökuskóla

Greiðslur vegna bóklegs náms

Námsgjald á að greiða áður en nám hefst og telst skráning ekki gild fyrr en búið er að ganga frá greiðslu. Greiðslur fara fram á greiðslusíðu Teya en þar er hægt að greiða með öllum helstu greiðslukortum.
Vinsamlega athugið að eftir að nám er hafið og nemandinn hefur greitt námskeiðið hefur nemandi skuldbundið sig til að greiða allt námsgjaldið og er því ekki hægt að fá það fellt niður eða endurgreitt.

Greiðslur vegna verklegs náms

Sé námskeiðsgjald fyrir verklegt ökunám (ökutíma) greitt ásamt bóklegu námi hefur nemandi tryggt sér lágmarks fjölda ökutíma nema annað sé tekið fram. Lágmarksfjöldi ökutímar miðast við þá ökutíma sem Samgöngustofa gefur út að nemandi skuli taka ásamt þeim tíma sem nemandi þarf að nota ökutækið í verklegu prófi. Komi til þess að nemandi þurfi fleiri ökutíma eða þurfi að endurtaka verklegt próf er slíkt ekki innifalið í námskeiðsgjaldi og greiða þarf þá tíma sérstaklega.
Komi til breytinga á reglugerð er varðar kröfur til fjölda ökutíma eftir að nemandi hefur greitt verklegt nám getur Ekill Ökuskóli krafið nemenda um greiðslu sem nemur mismun þess sem ný reglugerð gerir kröfu um. Miðast sú upphæð við þá verðskrá sem er í gildi hjá Ekil Ökuskóla á þeim tíma sem breyting á reglugerð tekur gildi.

Gildistími námskeiðs

Bóklegt námskeið gildir í tvö ár og miðast það frá þeim degi sem nemandinn kaupir námskeiðið. Hafi nemandinn ekki lokið námskeiðinu að tveimur árum liðnum þarf að kaupa námskeiðið að nýju og hefja það frá grunni.