Umferðaöryggi bíltækni, Endurmenntun - Fjarfundur

Bílstjóri með  réttindi til  að  stjórna  bifreið  í  C1-,  C-,  D1-og  D-flokki  í atvinnuskyni er yfirleitt meira í umferðinni en hinn almenni ökumaður og má því  ætla  að  hann  komi  oftar  að  vettvangi  umferðarslyss.  Aðrir  vegfarendur ætlast að auki oft til þess að þeir taki að sér stjórn aðgerða á vettvangi slyss. Ennfremur  má  gera  ráð  fyrir  að  bílstjóri  sem  starfar  við  farþegaflutninga  í atvinnuskyni geti verið fjarri byggð með farþega þegar slys verður. Mikilvægt er að hann þekki skipulag, boðleiðir og störf björgunar-og viðbragðsaðila og geti undirbúið aðkomu þeirra á vettvangi. Farið er yfir helstu  þætti  sem  auka  öryggi  í  umferðinni,bæði er  varða umhverfi og bíltækni.  Kynnt er hugmyndafræði svokallaðrar „núllsýnar“ í umferðaröryggisstarfi og helstu  tegundir vinnuslysa  og  umferðarslysa skoðaðar.

Forkröfur náms: Ætlað atvinnubílstjórum í akstri ökutækja með ökuréttindaflokki D1 og D til farþegaflutninga í atvinnuskyni og í flokki C1 og C til vöruflutninga í atvinnuskyni. 

Lengd:  7 klst. með matar- og kaffihléum

Námsmarkmið: Markmiðið er að bílstjórinn þekki vegakerfið og helstu hættur sem eru til staðar eða geta skapast í tengslum við ytri aðstæður, s.s. við mismunandi veðurskilyrði. Einnig að hann þekki helstu tegundir og orsakir umferðar- og vinnuslysa og þekki aðferðir við slysavarnir.

Leiðbeinandi: Jónas Þór Karlsson og Maron Pétursson

Hvar: EKILL FJARFUNDUR

Skráning