Grunnnámskeið vinnuvélaréttinda (Stóra vinnuvélanámskeiðið)
Námskeiðið fer fram í fjarfundi.
Tími: 19.september, 2022 17:00 - 22:00
Alla virka daga, til 30.september 2022, 10 skipti
Túlkun yfir á ensku eða pólsku möguleg ef næg þátttaka gefst. Erlendir aðilar verða þó að geta skilið og tjáð sig á ensku.
Námskeiðið gildir fyrir alla vélaflokka sem krafist er réttinda á og er 60 kennslustundir.
Kennt er 17:00-22:00 virk kvöld, gert er ráð fyrir matar og kaffitímum.
- Staðbundnir kranar og byggingarkranar - A flokkur
- Farandkranar og hleðslukranar stærri en 18 tm - B flokkur
- Brúkranar (ekki almennt krafist réttinda) - C flokkur
- Körfukranar og steypudælu kranar - D flokkur
- Gröfur þyngri en 4000 kg - E flokkur
- Hjólaskóflur - F flokkur
- Jarðýtur - G flokkur
- Vegheflar - H flokkur
- Minni jarðvinnuvélar og dráttarvélar með tækjabúnaði - I flokkur
- Lyftarar með 10 tonna lyftugetu og minni - J flokkur
- Lyftarar með meiri en 10t lyftigetu - K flokkur
- Valtarar - L flokkur
- Útlagningarvélar - M flokkur
- Hleðslukranar minni en 18 tm - P flokkur
Verð: 98.000 kr
Mundu að kanna styrk til náms hjá þínu stéttarfélagi.
Skráðu þig núna