D1 og D1E

D1 réttindi

Réttindaflokkur D1 gefur réttindi til að aka hópbifreið fyrir 16 farþega í atvinnuskyni. Með D1 réttindi getur viðkomandi aðili starfað við akstur slíkra bifreiða og er heimilt að taka gjald fyrir aksturinn. Þá gefur þessi réttindaflokkur réttindi til að mega aka bifreiðinni með eftirvagni sem er að heildarþunga 750 kg. Til þess að mega draga þyngri eftirvagn þarf að taka eftirvagnaréttindi flokk D1E.

Sá sem tekur D1 réttindi fær einnig svokölluð B/Far (eða BFF) réttindi og má því aka bifreið sem tekur allt að 8 farþegum og taka fyrir það gjald. Athugið að ætli viðkomandi að keyra leigubifreið er krafa að hafa setið svokallað harkaranámskeið. 

Nánar um BFF réttindi

Algengar spurningar

Hvenær má taka D1 réttindi?

Einstaklingur sem hefur náð 21 árs aldri og hefur fullnaðarökuskírteini getur fengið D1 réttindi.

Hversu mikið bóklegt nám þarf ég að taka fyrir D1 réttindi?

Taka þarf 78 kennslustundir. Það samanstendur af grunnhluta námskeiðsins sem er 52 stundir ásamt framhaldshlutanum sem er 32 kennslustundir. Í dögum talið er það rúmlega 16 virkir dagar. 

  • Umferðafræði - 12 kennslutímar
  • Umferðasálfræði - 12 kennslutímar
  • Skyndihjálp - 16 kennslutímar
  • Bíltækni - 12 kennslutímar
  • Stór ökutæki - 10 kennslutímar
  • Ferða- og farþegafræði - 16 kennslustundir

Hvað þarf ég að taka marga ökutíma?

8 verklega tíma í akstri að viðbættum próftíma, samtals 9 tíma.
Athugið að þeir sem hafa C1 réttindi þurfa aðeins að taka 2 verklega tíma ásamt einum próftíma, samtals 3.  

Hvað þarf ég að gera til mega keyra eftirvagn sem er þyngri en 750kg?

Til þess að mega keyra eftirvagn/tengitæki sem er þyngra en 750 kg þá þarf að taka D1E réttindi. Hægt er að lesa meira um D1E réttindi með því að smella hér

Fæ ég atvinnuréttindi á D1 eftir námið?

Já. 

Verðskrá fyrir D1

Almennt verð fyrir D1 réttindi er 310.000 -kr. en innifalið í því er allt bóklegt og verklegt nám. 

Þeir sem hafa tekið meiraprófið áður og fengið C1 eða B/far (leigubíll) þurfa ekki að greiða fullt námskeiðsgjald.

Réttindi

Fjöldi ökutíma

Verð

D1 réttindi

8 ökutímar + próftími

310.000 -kr.

D1 réttindi, viðbót við leigubílaréttindi (B/Far) 

8 ökutímar + próftími

240.000 -kr. 

D1 réttindi, viðbót við C1 réttindi.

2 ökutímar + próftími

110.000 -kr.

 

Fæ ég leyfi til að keyra leigubíl ef ég tek D1 réttindi

Sá sem hefur tekið D1 réttindi fær einnig svokölluð B/Far (BFF) réttindi. Til þess hinsvegar að mega keyra leigubíl er nauðsynlegt að sitja námskeið sem kallast Harkaranámskeið. Ekill Ökuskóli er ekki með slíkt námskeið hjá sér. 

D1E réttindi

Réttindaflokkur D1E gefur réttindi til að aka hópbifreið í flokki D1 með eftirvagni sem er þyngri en 750 kg að heildarþunga. Þó má sameiginlegur heildarþungi beggja ökutækja ekki fara yfir 12.000 kg

Athugið að D1E réttindin gefa einnig svokölluð C1E réttindi fyrir þá sem höfðu C1 réttindi fyrir. 

Svör við öðrum algengum spurningum má finna hér fyrir neðan. Ef þú hefur einhverjar aðrar spurningar hvetjum við þig til að hafa samband við okkur og við svörum eftir bestu getu.

Algengar spurningar

Hvenær má taka D1E réttindi?

Einstaklingur sem hefur náð 21 ára aldri og hefur fullnaðarökuskírteini getur fengið D1E réttindi.

Þarf ég að bæta einhverju við bóklega námið til að mega taka D1E réttindi?

Þegar tekið er D1E réttindi þarf nemandinn einnig að sitja þrjár kennslustundir af því sem kallast Eftirvagnar stórra ökutækja. Þetta er hluti af framhaldsnámskeiði meiraprófsins. Best er að skoða stundarskrá hverju sinni til að sjá hvenær þetta er kennt. 

Hvað þarf ég að taka marga ökutíma?

4 verklega tíma í akstri að viðbættum próftíma, samtals 5 tíma.

Fæ ég einnig BE og C1E réttindi ef ég tek D1E réttindi?

Já. Sá sem er með D1E fær einnig BE réttindi  

Verðskrá fyrir D1E

Verðið á D1E réttindum er 90.000 kr. en innifalið í því er bóklegt og verklegt nám ásamt verklegum próftíma. Athugið að ef þörf er á fleiri verklegum tímum en þeim 5 sem nefndir eru hér fyrir ofan þarf að greiða það sérstaklega.

Sjá verðskrá Ekils