C og CE réttindi

C réttindi

Réttindaflokkur C gefur réttindi til að aka vörubifreið sem er þyngri en 7.500 kg að heildarþunga. Þá gefur þessi réttindaflokkur réttindi til að aka bifreiðinni með eftirvagni sem er að heildarþunga 750 kg. Til þess að mega draga þyngri eftirvagn þarf að taka eftirvagnaréttindi flokk CE.

Algengar spurningar

Hvenær má taka C réttindi?

Einstaklingur sem hefur náð 21 árs aldri og hefur fullnaðarökuskírteini getur fengið C réttindi.

Hversu mikið bóklegt nám þarf ég að taka fyrir C réttindi?

Taka þarf 84 kennslustundir. Það samanstendur af grunnhluta námskeiðsins sem er 52 stundir ásamt framhaldshlutanum sem er 32 kennslustundir. Í dögum talið er það rúmlega 16 virkir dagar. 

  • Umferðafræði - 12 kennslutímar
  • Umferðasálfræði - 12 kennslutímar
  • Skyndihjálp - 16 kennslutímar
  • Bíltækni - 12 kennslutímar
  • Stór ökutæki - 31 kennslutímar

Hvað þarf ég að taka marga ökutíma?

12 verklega tíma í akstri að viðbættum próftíma, samtals 13 tíma.
Athugið að þeir sem hafa D réttindi þurfa aðeins að taka 8 verklega tíma ásamt einum próftíma, samtals 9.  

Hvað þarf ég að gera til mega keyra eftirvagn sem er þyngri en 750kg?

Til þess að mega keyra eftirvagn/tengitæki sem er þyngra en 750 kg þá þarf að taka CE réttindi. Hægt er að lesa meira um CE réttindi með því að smella hér

Fæ ég atvinnuréttindi á C eftir námið?

Já. 

Verðskrá fyrir C

Almennt verð fyrir C réttindi er 410.000 -kr. en innifalið í því er allt bóklegt og verklegt nám. 

Þeir sem hafa tekið meiraprófið áður og fengið C1, B/far (leigubíll) eða D réttindi þurfa ekki að greiða fullt námskeiðsgjald.

Réttindi

Fjöldi ökutíma

Verð

C réttindi, viðbót við C1 réttindi. 

12 ökutímar + próftími

273.000 -kr.

C réttindi, viðbót við leigubílaréttindi. 

12 ökutímar + próftími

340.000 -kr. 

C réttindi, viðbót við D réttindi.

8 ökutímar + próftími

200.000 -kr.

 

Fæ ég réttindi á C1 líka ef ég tek aðeins C?

Já þeir sem ekki eru með C1 réttindi öðlast þau réttindi með C réttindum. 

CE réttindi

Réttindaflokkur CE gefur réttindi til að aka vörubifreið í flokki C með eftirvagni sem er þyngri en 750 kg að heildarþunga. Þeir nemendur sem taka eftirvagnaréttindi í flokki CE og gilda þau réttindi einnig fyrir DE.

Athugið að til þess að mega taka CE réttindi þarf viðkomandi að vera með C réttindi. 

Svör við öðrum algengum spurningum má finna hér fyrir neðan. Ef þú hefur einhverjar aðrar spurningar hvetjum við þig til að hafa samband við okkur og við svörum eftir bestu getu.

Algengar spurningar

Hvenær má taka CE réttindi?

Einstaklingur sem hefur náð 21 ára aldri og hefur fullnaðarökuskírteini getur fengið CE réttindi.

Þarf ég að bæta einhverju við bóklega námið til að mega taka CE réttindi?

Þegar tekið er CE réttindi þarf nemandinn að sitja fjórar kennslustundir af því sem kallast Eftirvagnar stórra ökutækja til viðbótar við það sitja þarf fyrir C réttindi en er það námskeið hluti af framhaldsnámskeiði meiraprófsins. Best er að skoða stundarskrá hverju sinni til að sjá hvenær þetta er kennt. 

Hvað þarf ég að taka marga ökutíma?

7 ökutíma í akstri að viðbættum próftíma, samtals 8 tíma.

Athugið að þeir sem hafa C1E/D1E réttindi þurfa einungis að taka 4 ökutíma að viðbættum próftíma, samtals 5. 

Fæ ég einnig BE og C1E réttindi ef ég tek CE réttindi?

Já.  

Verðskrá fyrir CE

Verðið á CE réttindum er 160.000 kr. en innifalið í því er bóklegt og verklegt nám ásamt verklegum próftíma. Athugið að ef þörf er á fleiri ökutímum en þeim 5 sem nauðsynlegt er að taka þarf að greiða fyrir það sérstaklega.

Ef viðkomandi er með C1E réttindi fyrir lækkar námsgjaldið í 135.000 -kr. 

Sjá verðskrá Ekils