14.04.2012
Fest var kaup á bíl til kennslu fyrir C réttindi, vörubíl. Um er að ræða 12 tonna Daf 55 230 hp.Bíll sem hentar vel í kennsluna er
lipur og þægilegur til að keyra og læra á.
03.04.2012
Frá og með 1 maí þurfa nemendur á Eyjafjarðarsvæðinu að hafa tekið Ökuskóla 3 áður en bóklegt og verklegt
ökupróf er tekið.Nemendur þurfa að leita til síns ökukennara eða ökuskóla og fá upplýsingar um feril þess hluta
ökunámsins.
13.02.2012
NÁMSKEIÐ BYRJAR FÖSTUDAG 24 FEB KL 17:00
Næstu námskeið í meiraprófum og vinnuvélanámskeiðum verða í byrjun febrúar eða um leið og næg þátttaka
fæst.Þeir sem áhuga hafa á því að taka aukin ökuréttindi eða vinnuvélaréttindi eru kvattir til að skrá sig
hér fyrir neðan eða að hringja í síma 4617800 eða 8945985.
03.02.2012
Ef næg þátttaka fæst verður haldið 80 kennslustunda vinnuvélanámskeið á Höfn.Vinnuvélaréttindi sem gefa réttindi
á allar vinnuvélar. Ekki er þörf á því að hafa litla vinnuvélaprófið til að geta setið stærra
vinnuvélanámskeiðið.
11.01.2012
Ef næg þátttaka fæst á námskeið til aukina ökuréttinda og eða vinnuvélaréttinda mun námskeið verða haldin
í febrúar eða mars næstkomandi. Dagsetning er ekki komin á námskeiðin en verður send út um leið og næg þatttaka er komin.
10.01.2012
Fyrirhugað er að halda vinnuvélanámskeið á Þorshöfn ef næg þátttaka fæst.Um er að ræða svo kallað stærra
námskeið sem gefur réttindi á allar vinnuvélar.Námskeiðið tekur yfir 80 kennslustundir þar sem hver kennslustund er 40 mín.
02.01.2012
Við hjá Ekli ökuskóla höfum orðið vör við að möguleikar til styrkja fyrir almenn ökuréttindi hjá
verkalýðsfélögum séu að aukast.Eitthvað virðist samt vera mismunandi hvaða rétt hver og einn hefur hjá sínu verkalýðsfélagi, skiptir þar líklega mestu um hvort
viðkomandi unglingur eða sá sem sækir um styrk hafi haft vinnu síðustu mánuði eða ár og greitt til verkalýðsfélags.
02.01.2012
Frá og með 1.janúar 2012 mun verðskrá skólans breytast, sjá verðskrá hér til vinstri á síðunni.
Þrátt fyrir að hækkanir á ýmsum vörum og þjónustu á síðustu mánuðum og árum sem ökuskólinn
þarf að kaupa hefur hækkun á verðskrá skólans verið óbreytt frá því 2007.
21.12.2011
Starfsmenn Ekils óska viðskiptavinum sínum og velunnurum gleðilegra jóla og þakkar fyrir viðskipti og góð samskipti
á árinu sem er að líða. .
14.12.2011
Þá er Volvo S60 R-Design disel komin klár til kennslu.Tafir urðu á því að taka Volvoinn í kennsluna vegna kennslutækja sem
þurfti að setja í hann en þau tæki þurfti að panta frá Þýskalandi.