- Netökuskóli Ekils
- Ökuréttindi
- Námskeiðin okkar
- Námsgögn
- Verðskrá
Slys og neikvæð umhverfisáhrif eru á meðal helstu vandamála í umferðinni. Vistakstur hefur marga kosti, s.s. orku- og peningasparnað, minni mengun og aukið umferðaröryggi, auk þess sem komið hefur í ljós að hann sparar oftar en ekki tíma. Vistakstur snýst um að bílstjóri sýni framsýni í akstri og verði meðvitaðri um aksturslag sitt, dragi úr eldsneytiseyðslu og um leið úr losun mengandi efna í útblæstri. Samhliða breyttum hugsunarhætti bílstjóra eykst umferðaröryggið. Sérhver bílstjóri getur tileinkað sér hagkvæmari og umhverfisvænni akstur.
Forkröfur náms: Ætlað atvinnubílstjórum í akstri ökutækja með ökuréttindaflokki D1 og D til farþegaflutninga í atvinnuskyni og í flokki C1 og C til vöruflutninga í atvinnuskyni.
Atvinnubílstjórar þurfa á fimm ára fresti að endurnýja atvinnuréttindi sín.
Lengd: 7 klst. með matar- og kaffihléum
Námsmarkmið: Markmiðið er að bílstjórinn þekki hugmyndafræði vistaksturs og með hvaða hætti hann getur lágmarkað eldsneytiseyðslu og umhverfismengun og hámarkað öryggi sitt og annarra í umferðinni með réttu aksturslagi.
Leiðbeinandi: Jónas Þór Karlsson
Hvar: EKILL FJARFUNDUR
Við minnum á að sótt er um styrk vegna fræðslu fyrirtækis á vefgátt sjóða, www.attin.is