Endurmenntun

Farþegaflutningar

Farið er yfir ábyrgðarhlutverk bílstjóra með réttindi til að stjórna bifreið í D1-og D-flokki í atvinnuskyni í farþegaflutningum sem og þjónustuþáttinn í starfi hans.

Fjallað er um reglur um farþegaflutninga,s.s. leyfisveitingar og mikilvægi öryggis og aðbúnaður farþega.

Forkröfur náms: Ætlað atvinnubílstjórum í akstri ökutækja með ökuréttindaflokki D1 og D til farþegaflutninga í atvinnuskyni og í flokki C1 og C til vöruflutninga í atvinnuskyni.
Atvinnubílstjórar þurfa á fimm ára fresti að endurnýja atvinnuréttindi sín.


Lengd: 7 klst. með matar- og kaffihléum

Námsmarkmið: Markmiðið er að bílstjórinn þekki atriði er lúta sérstaklega að akstri hópbifreiða, farþegaflutningum, ábyrgð bílstjóra á öryggi farþega og almennt að þjónustuhlutverki bílstjóra, náttúruvernd, ferðamennsku, mjúkum akstri o.fl. Hann þekki ákvæði í lögum og reglum um flutning farþega og sérbúnað hópbifreiða.

Leiðbeinandi: Jónas Þór Karlsson

Hvar: EKILL FJARFUNDUR