
Að fá ökuskírteini í hendi
fyrir almennt bifreiðapróf er ekki langt frá lagi að vera um 160 þúsund með öllu. Sú upphæð gæti skipst um það bil til helminga á tvö tímabil. Það er að segja, unglingar sem byrja að læra á bíl 16 ára gamlir og nýta sér æfingaaksturinn greiða ökunámið sitt að minnsta kosti í tvennu lagi.
Kostnaður á námskeiði fyrir aukin ökuréttindi er nokkur,
flestir aðilar hafa þó þann möguleika að fá styrk frá sínu verkalýðsfélagi. Styrkirnir eru misháir eftir verkalýðsfélögum því verður hver og einn að kynna sér styrkupphæð hjá sínu félagi.
Ökuréttindaflokka er hægt að taka alla í einu eða einstaka réttindaflokka og fer kostnaður mikið eftir því hvað ökuréttindi er um að ræða.




