Ökuskólinn á netinu

D1 flokkur Veitir rétt til að stjórna: Ökutæki í flokki D með sæti fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns. Atvinnuréttindi. D flokkur Veitir rétt til að

Vefverslun

D / DE réttindi - rúta / eftirvagn


D1 flokkur Veitir rétt til að stjórna:

Ökutæki í flokki D með sæti fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns. Atvinnuréttindi.

D flokkur Veitir rétt til að stjórna:

1. Bifreið með sæti fyrir fleiri en 8 farþega auk ökumanns.
2. Bifreið, skv. 1.tölul., með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heilarþyngd.
3. Liðvagni til fólksflutninga.

D 75 flokkur Veitir rétt til að stjórna:

Hópbifreið með sæti fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns. Við bifreið í þessum flokki má tengja eftirvagn / tengitæki sem er ekki meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd. ( Undirflokkur D1 ).

D1E flokkur Veitir rétt til að stjórna:

Ökutæki í flokki D með sæti fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns með tengdan eftirvagn/tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, enda sé:
a. leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 12.000 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins/tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins og
b. eftirvagninn/tengitækið ekki notað til fólksflutninga.

DE flokkur Veitir rétt til að stjórna:

Samtengdum ökutækjum með hópbifreið og eftirvagni / tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd.

DE 77 flokkur Veitir rétt til að stjórna:

Ökutæki í flokki D með sæti fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns (D1) með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, enda sé:

a. leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 12.000 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins / tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins.

b. eftirvagninn / tengitækið ekki notað til fólksflutninga (Undirflokkur D1E) 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf