Ökuskólinn á netinu

C1 flokkur Veitir rétt til að stjórna: Bifreið í flokki C1 allt að 7.500 kg að leyfðri heildarþyngd og 8 farþega án gjaldtöku. Tengdan eftirvagn /

Vefverslun

C / CE réttindi - vörubíll / vagn



C1 flokkur Veitir rétt til að stjórna:

Bifreið í flokki C1 allt að 7.500 kg að leyfðri heildarþyngd og 8 farþega án gjaldtöku. Tengdan eftirvagn / tengitæki sem er ekki meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd.

C flokkur Veitir rétt til að stjórna:

1. Bifreið sem er meira en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd og með sæti fyrir 8 farþega eða færri, auk ökumanns.
2. Bifreið samkvæmt 1. tölulið, með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er ekki meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd.

C 74 flokkur Veitir rétt til að stjórna:

Bifreið sem er ekki meira en 7.500 kg að leyfðri heildarþyngd. Við bifreið í þessum flokki má tengja eftirvagn / tengitæki sem er ekki meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd. ( Undirflokkur C1 ).

C1E flokkur Veitir rétt til að stjórna:

Samtengdum ökutækjum með vörubifreið og eftirvagn / tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd. enda sé leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 12.000 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins/tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins

CE flokkur Veitir rétt til að stjórna:

Samtengdum ökutækjum með vörubifreið og eftirvagn / tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd.

CE 76 flokkur Veitir rétt til að stjórna:

Ökutæki í flokki C með leyfðri heildarþyngd 7.500 kg eða minna (C1) með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, enda sé leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 12.000 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins / tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins. ( Undirflokkur C1E ).






Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf