
B flokkur Veitir rétt til að stjórna:
1. Fólksbifreið með leyfða heildaþyngd 3.500 kg eða minna og með sæti fyrir 8 farþega eða færri, auk ökumanns.
2. Sendibifreið með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna.
3. Fólks- eða sendibifreið með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd.
4.Fólks- eða sendibifreið með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd enda sé leyfð
heildarþyngd beggja ökutækja 3.500 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins / tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd
dráttartækisins.
5. Dráttarvél.
6. Vinnuvél. ( aðeins heimilt að aka en ekki vinna á vinnuvélinni )
7. Léttu bifhjól.
8. Bifhjóli á þremur, fjórum eða fleiri hjólum.
9. Torfærutæki, s.s vélsleða og torfærubifhjóli.
BE flokkur Veitir rétt til að stjórna:
1. Samtengdum ökutækjum þar sem dráttartækið er í flokki B og leyfð heildarþyngd eftirvagns eða tengitækis er meiri en 750 kg. Samanlögð þyngd beggja ökutækja, bíls og kerru, má þó ekki fara yfir 3.500 kg. Undantekning frá þessu er þegar kerran er ekki þyngri en 750 kg. Dæmi: bíllinn er 3.500 kg í heildarþyngd þá má kerran vera allt að 750 kg í heildarþunga.




