Snemma á þessu ári var námskeið Ö2 í fjarnámi hjá Ekli ökuskóla viðurkennt af Umferðarstofu.
Bóklegt námskeið til almennra ökuréttinda í fjarnámi hefur verið vel tekið af okkar viðskiptavinum og fer þeim stöðugt
fjölgandi sem finnst þægilegt að taka bóklega námskeiðið á netinu.
Hægt er að taka bókleg námskeið í fjarnámi fyrir ökuréttindi á léttbifhjól, bíl og
bifhjólaréttindi. Stefnt er að því að koma fleiri námskeiðum tengdum ökuréttindum í fjarnám hjá Ekli
ökuskóla. Fyrir utan þægindin og lægri heildar kostnað við að taka námskeiðin í fjarnámi þá er hér um mjög
góð og efnismikil námskeið að ræða. Kostnaður er lægri m.a vegna þess að ferðir til og frá skóla er engin.